top of page

The Yuletide is upon us
with Ásta and Valli

+asta Valli 262478409_2334675453330729_6713847517451557962_n.jpg

Bakkastofa Menningarhús - Eyrargata 32 820 Eyrarbakki
bakkastofa@gmail.com
s: 821 2428 / 821 2426











Nú þegar dimma tekur leitum við leiða til að gleðjast og gleðja hvort annað.

Bakkastofa hefur í gegnum árin átt yndislegar stundir með gestum sem koma til njóta andrúmslofts jólanna á lifandi hátt hér í fallega þorpinu okkar.

   Bakkastofu Jóla- og aðventudagskrár eru hreyfanlegar og sérsniðnar eftir óskum gesta.

Þær geta farið fram á ólíkum tímum dags og með mismörgum gestum í senn.
Þó eru dagskrárnar alltaf fyrirfram bókaðar fyrir gesti sem taka sig saman og mynda      fallega samverukjarna.
Bakkastofa horfir jafnt til fjölskyldna, vinahópa og vinnustaða í dagskrám sínum. 


Á þessari aðventu vinnur Bakkastofa með Rauða húsinu og getur þannig boðið gestum sínum sérstakt verð fyrir jólaborð í veitingahúsinu.

Tveggja tíma sérsniðin Bakkastofudagskrá og Jólaborð
með framhald af lifandi tónlist í lok máltíðar.
Samanlagt Kr 15.000

Jólaborðin eru haldin fjórar helgar á aðventu en þá má líka sérpanta á öðrum dögum.

     Dagskrár Bakkstofu getur verið "þakklát upplifunargjöf" hvort sem eldri kynslóðin býður      þeirri yngri eða sú yngri þeim sem eldri eru. 
        Sameining kynslóða er oft grunntónn í jólahaldi og þá getur verið gott að tengja                       með áhugaverðu innihaldi.
  Dagskrárnar geta líka náð yfir til Jólatréssýningar Hússins þar sem meðal annars má líta elsta jólatré landsins, "Jólatréð úr Hruna".
 
Jólaboð fjölskyldna er siður sem við öll þekkjum
en þau geta tekið á fyrir þá sem þau halda.

Jólaboð sem sameinar og allir fá notið sín er það sem Bakkastofa býður!
 
 Þið ykkar sem viljið gista á Bakkanum fagra kynnið ykkur vandaða gistingu á góðu verði : https://bakkihostel.is/ 












 

bottom of page