top of page

Fundir​

Hafnarloftið býður kjöraðstæður til fundarhalda, allt frá fámennum fundum í ró og næði til stærri funda fyrir allt að 60 þátttakendur, sem síðan geta skipt liði í smærri einingar til úrvinnslu og annarar sértækrar iðju.



Staðsetning í hjarta miðborgarinnar, ró og næði, tækjabúnaður, vistlegt umhverfi og ánægðir viðskiptavinir segja það sem segja þarf.

Hafðu samband og við tökum vel á móti ykkur. 

Gestastofa

Miðgarður

Eyrarbakkastofa

Bókaherbergi/Testofa

 



Hafnarloftið er leigt út fyrir fundi af ólíkum stærðum og gerðum sem og fyrir fyrilestra  og starfsmannviðtöl. Nú þegar hafa bæði félagasamtök og vinnustaðir orðið að föstum viðskiptavinum Hafnarloftsins.

Aðstaðan hentar  vel í tilvikum þegar markmiðið er  að komast út af vinnustaðnum til að brjóta upp daglegt mynstur og stuðla að hlutlægri sýn á verkefni, endurskipulagningu og mótun framtíðarsýnar.

Fastir viðskiptavinir  telja Hafnarloftið vera athvarf sem einnkennist af hlýlegu og óhefðbundnu umhverfi í bland við persónulega þjónustu. Af þeim umsögnum má álykta að markmiði staðarhaldara um  starfrækja Býli í borg í miðborginni hafi náðst og að það falli vel að þörfum gesta.

Hægt er að panta allt rýmið eða einstaka hluta þess, ýmist í hálfan eða heilan dag. Algengt er síðan að fundarmenn vilji slaka á í dagslok til að njóta veitinga og fallegs umhverfis.

  • Wix Facebook page
  • Wix Twitter page
  • Wix Google+ page

hafnarloftið / harbourloft - lækjartorg 5, 101 reykjavík / asta@nema.is - 821 2428 - nemaforum.is

bottom of page